Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 113. fundur,  30. maí 2023.

veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

538. mál
[16:59]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Hér er verið að heimila togskipum með óheft vélarafl og óhefta stærð, þ.e. að taka af allar takmarkanir hvað varðar stærð á skrúfu, veiðar uppi í fjöru. Með öðrum orðum, einhvern tímann hefðu þeir sem kenna sig við Vinstri græn talað um að hér væri verið að fremja vistmorð. Skömm Vinstri grænna er mikil í þessu máli og skömm hæstv. matvælaráðherra enn meiri. Ég tel einfaldlega alveg óborganlegt að þingflokkur sem kennir sig við eitthvað grænt og einhverja vist skuli leggja þetta mál hér fram. Það verður tekið eftir því hverjir af þingmönnum Vinstri grænna greiða atkvæði með þessu frumvarpi, herra forseti.