heilbrigðisstarfsmenn.
Virðulegur forseti. Sömu kjör fyrir sömu vinnu. Einhvern veginn virðist lenskan alltaf vera sú, bæði gagnvart öryrkjum og eldra fólki — þarna erum við að biðja eldra fólk um að vinna áfram en viljum samt skerða laun þess. Þetta er óskiljanlegt fyrirbrigði. Af hverju í ósköpunum er þetta svona? Jú, það á að skrifa það í nefndarálitið að hvetja eigi til að þessu verði breytt. Það trúir því enginn, það fer enginn eftir því. Ef við getum ekki einu sinni farið eftir lögum sem samþykkt eru á Alþingi, t.d. um hagsmunafulltrúa aldraðra, og breytt því gjörsamlega, látið það bara hverfa, þá verður þetta aldrei samþykkt nema þetta sé inni í lögunum. Ég hvet fólk þess vegna til að samþykkja breytingartillöguna um að þetta verði séreign.