breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2024.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Já, ég hef tekið tillit til þeirra og óskaði einmitt eftir upplýsingum frá rannsókna- og upplýsingaþjónustu þingsins um fjármagnstekjuskatt á Norðurlöndum og í nokkrum Evrópuríkjum. Það er rétt sem hv. þingmaður nefnir að það eru alls konar frádrættir og mismunandi reglur sem gilda á hverjum stað. Ég er hér með mjög nákvæma og glænýja úttekt á því frá rannsóknaþjónustunni og mun gjarnan láta hv. þingmann hafa eintak af henni. Það þarf að sjálfsögðu alltaf að vera einhvers konar sérákvæði. Til að mynda nefndi hv. þingmaður Finnland en þar er einmitt gott dæmi um undanþágu sem er líka til á Íslandi, þar sem hagnaður af sölu húsnæðis er skattfrjáls ef húsið eða íbúðin hefur verið nýtt sem fast heimili einstaklings eða fjölskyldu í samfellt a.m.k. tvö ár. Þetta erum við líka með. Það eru mismunandi reglur og ég held að það væri vel nærri lagi og mjög gott, þar sem ég veit að hv. þingmaður er að fara að taka við formennsku í efnahags- og viðskiptanefnd, ef nefndin myndi kynna sér vel allar þær reglur sem eru í gildi, hvers vegna þessar undanþágur eru á mismunandi hlutum og hvernig við getum lært af frændum okkar á Norðurlöndum að búa til fjármagnstekjuskattskerfi þar sem þeir ríku borgi sinn skerf til samfélagsins en borgi ekki lægri skatta en launafólk.