fæðingar- og foreldraorlof.
Forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jóhanni Páli Jóhannssyni fyrir hans framsögu á þessu máli. Þetta er mjög mikilvægt réttlætismál og jafnréttismál. Ég vil í fyrsta lagi bara fagna tillögu um að hækka úr 600.000 í 800.000 kr. en mig langar að leggja sérstaka áherslu á námsmenn. Ég sé að þið eru búin að vera að skoða réttindi námsmanna. Eins og ég skil þetta hefur það verið þannig að námsmenn hafa aðeins rétt á fæðingarstyrk ef þeir hafa verið í 75% eða meira námi á sex mánaða tímabili 12 mánuðum fyrir fæðingu barns. Þessi styrkur er þessar 191.000 kr. ef námsframvinda er 75%. Ef einstaklingur uppfyllir ekki að hafa lokið 75% námi fær hann styrk fyrir fólk utan vinnumarkaðar sem er núna upp á 83.000 kr. Ég var bara að spá hvort það hafi einhvern tíma komið fram eða hvort hv. þingmaður hafi talað um það og það hafi bara farið fram hjá mér, að þetta 75% viðmið yrði lækkað í kannski 50% eða 25%, vegna þess að heilsa móður er oft ekki góð í þessu samhengi, eða hvort það hafi ekki komið til greina að skoða þessa prósentutölu í öllu þessu góða sem þið eruð að leggja fram hérna og ég styð bara heils hugar. Mér finnst það bara mjög flott og líka mikilvægt að skoða þetta, sérstaklega fyrir námsmenn.