154. löggjafarþing — 9. fundur,  26. sept. 2023.

heilbrigðisþjónusta o.fl.

225. mál
[18:04]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég heyri ekki betur á hæstv. ráðherra en að hann sé áhugasamur um hugmyndir um að setja á fót embætti sérstaks umboðsmanns sjúklinga. Notendur heilbrigðisþjónustu eru gjarnan í viðkvæmri stöðu, gjarnan vegna þeirra ástæðna sem leiða til þess að þeir þurfa að leita heilbrigðisþjónustu og jafnvel í kjölfar atvika sem fóru kannski ekki eins og átti að gerast. Ég myndi því telja mikilvægt að það sé með einhverjum hætti tryggt að einstaklingar í þeirri stöðu eigi þess kost að leita til einhvers sem getur talað þeirra máli. Það kostar auðvitað orku og kostar líka þekkingu og styrk og annað að fara upp á móti heilli stofnun eins og t.d. heilbrigðisstofnun.

Nú höfum við, 16 þingmenn úr fjórum flokkum, lagt fram þingsályktunartillögu um að setja á fót embætti umboðsmanns sjúklinga. Ég ætla bara að ljúka þessu með því að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann muni ekki styðja þá þingsályktunartillögu.