endurskoðun á lagaumhverfi fyrir smávirkjanir.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Signýju Kristjánsdóttur fyrir flutninginn á þessari tillögu. Ég tel mig nú skilja markmiðið með henni og innihaldið en ég er þó með nokkrar spurningar til hv. þingmanns sem mér þætti vænt um að fá aðeins að reifa. Það kemur fram í góðri greinargerð að málið hafi verið lagt fram á fyrri þingum og það tekið breytingum, m.a. í kjölfar gildistöku nýrra laga frá 2021. Fyrsta spurningin er kannski hvort hv. þingmaður telji það einboðið að breytingarnar á lögunum — það er sérstaklega tilgreint að þarna sé horft á viðmiðunarmörkin. Ég tek eftir því sem segir í greinargerðinni og hv. þingmaður kom inn á það að í umsögn Orkustofnunar frá síðasta þingi segir að það sé fullt tilefni til að endurskoða þau lög og þær reglur sem um smávirkjanir gilda og ekki síst að skilgreint sé með fullnægjandi hætti hvað smávirkjanir séu og til hvaða orkugjafa þær nái. Fyrri spurningin er kannski þessi: Telur hv. þingmaður að það sé komin nægileg reynsla á þær breytingar sem voru gerðar? Þær voru töluverðar og er komið inn á það í greinargerðinni að þær hafi verið um margt jákvæðar. Er hægt að fullyrða að þær séu hamlandi fyrir þá aðila sem vilja ráðast í smávirkjanir? Vantar okkur kannski örlítið meiri tíma til að átta okkur á því hvort breytingarnar séu kannski frekar styðjandi við það?