154. löggjafarþing — 17. fundur,  18. okt. 2023.

hlutur fyrirtækja í hagnaðardrifinni verðbólgu.

347. mál
[15:47]
Horfa

Teitur Björn Einarsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Ég ætla nú ekki að vera að munnhöggvast hér um hvað er rétt og rangt í þessu. Það liggur einfaldlega fyrir þegar eftirspurn er að aukast og framboðið, eða ekki, að þá leiðir það til hækkunar verðlags að öðru óbreyttu. Þetta liggur alveg fyrir og hvort sem hv. þingmaður var að vísa til erlendra fræðirita má alveg taka það fram að í vinnuskjali hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, þar sem er verið að velta þessu upp, er sérstaklega tekið fram að það sé ekki samhengi hér á milli í þessum efnum. Ég tel einfaldlega að þessi skýrslubeiðni, greinargerðin með henni, sé illa unnin, illa rökstudd og sé til þess fallin eiginlega að þyrla upp einhverju ryki þegar verið er að horfa á hver er meginorsök verðbólgunnar.