hlutur fyrirtækja í hagnaðardrifinni verðbólgu.
Virðulegur forseti. Óttaleg viðkvæmni er þetta nú fyrir því að hér sé unnin skýrsla og lagt mat á mismunandi orsakaþætti verðbólgunnar. Hvers vegna er þessi gríðarlega viðkvæmni gagnvart því frá þingflokki Sjálfstæðisflokksins? Ég held kannski að hv. þm. Teitur Björn Einarsson ætti að hringja aðeins niður í Seðlabanka Evrópu og skóla þar fólkið til sem hefur einmitt verið að flytja skýrslur og halda erindi um það sem kallað hefur verið hagnaðardrifin verðbólga. Ég held kannski að hv. þingmaður ætti líka að skóla aðeins til fólkið hjá Seðlabanka Bretlands sem hefur fjallað umtalsvert um þetta. Hér hafa ýmiss konar skýrslubeiðnir komið fram og það er nú sjaldgæft að þingmenn leggist beinlínis gegn þeim. En í þessu máli, í alvörunni, má ekki skoða það? Ef rétt reynist, ef það er svo að þetta er bara einhver bölvuð della í þessari skýrslubeiðni, er þá ekki bara ágætt að fjármálaráðuneytið með sína sérfræðinga jarði þá vitleysu í almennilegri skýrslu svo hv. þm. Teitur Björn Einarsson geti skálað fyrir því?