154. löggjafarþing — 27. fundur, 9. nóv. 2023.
afstaða Íslands vegna átaka fyrir botni Miðjarðarhafs.
469. mál
Frú forseti. Það var gott að utanríkismálanefnd, og Alþingi núna, sé skýr um það fyrir hvað við stöndum í utanríkismálum. Það hefur verið hulið örlitlu mistri síðustu vikurnar og við það verður ekki unað. Um leið og þessi tillaga hefur verið samþykkt ætlumst við auðvitað til að ríkisstjórnin geri þessa tillögu að sinni og láti í sér heyra á alþjóðavísu.