tímabundinn stuðningur til greiðslu launa vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég held að það sé alveg rétt að það muni koma upp álitamál í þessu líkt og mörgum öðrum málum. Við viljum þó meina að við séum að ná utan um ansi stóran hóp þeirra sem þetta á við um, þ.e. fólk sem hefur starfsstöð í Grindavík. Spurning hv. þingmanns um hvert fólk geti leitað er mjög góð og það er mikilvægt að fólk viti svarið við henni. Vinnumálastofnun fer með framkvæmdina og þau eru þegar byrjuð að undirbúa hana, þ.e. tölvukerfin hjá sér. Ég geri ráð fyrir því að það verði upplýsingar um þetta á vefnum island.is og það verði hægt að nálgast upplýsingar niðri í Tollhúsi, eins og hv. þingmaður kom inn á, en þar er Vinnumálastofnun að koma sér upp aðstöðu og þau verða þar á einhverjum tilteknum tímum. Ég geri líka ráð fyrir að hægt verði að fara á skrifstofu Vinnumálastofnunar sem er á Grensásveginum. Ég geri ráð fyrir því að þar verði opið líka og auðvitað hægt að hringja inn til að fá upplýsingar. Hvað varðar síðan kæruleiðir þá eru það mjög mikilvæg réttindi einstaklingsins að geta skotið ákvörðun stjórnvalda til æðri ákvörðunar. Kæruleiðin var líka til úrskurðarnefndar velferðarmála í Covid, svo dæmi sé tekið. Þannig að ég sé ekki í fljótu bragði með hvaða móti við gætum tryggt þessi mikilvægu réttindi fólks án þess að fara þessa leið, enda hefur hún kannski sýnt sig og sannað og hún hefur hingað til gengið vel.