154. löggjafarþing — 46. fundur,  8. des. 2023.

fjárlög 2024.

1. mál
[17:52]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Frú forseti. Ég kem hingað upp enn og aftur til að hnykkja á nálgun Viðreisnar í atkvæðagreiðslu um þessi mál, mögulega í síðasta skipti í dag. Nú höfum við greitt þrisvar sinnum atkvæði með stuðningi við tekjulægri heimili í gegnum auknar vaxtabætur. Við erum á gula takkanum við tillögum meiri hlutans, ekki sömu fjárhæðir þar að lútandi, vegna þess að við viljum hnykkja á því að að okkar mati er grunnstefið rangt í þessari vinnu. Við hefðum haft öðruvísi forgangsröðun, aukið aðhald til að geta greitt vaxtabætur til heimila, ekki bara þessara breytingartillagna sem hér hafa verið felldar, heldur farið hærra upp tekjustigann vegna þess að við erum komin í þær aðstæður að það eru millitekjuhóparnir sem eru að lenda í húrrandi vandræðum. Það er vont fyrir samfélagið og þessar fjölskyldur til viðbótar.