154. löggjafarþing — 56. fundur,  22. jan. 2024.

framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2024--2027.

584. mál
[19:07]
Horfa

Magnús Árni Skjöld Magnússon (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir þetta góða svar og fagna því sem hann sagði þar. Þetta sprettur auðvitað ekki úr engu. Hér var auðvitað fyrir skömmu mikil umræða, spratt upp í kjölfar leiksýningar í Þjóðleikhúsinu, um tækifæri fatlaðs fólks til að standa á sviði. Þau tækifæri takmarkast auðvitað af því að aðgengi þeirra hefur verið takmarkað að námi á þessu sviði. Þá er staðan sú að þá erum við að tala um fullgilt háskólanám í sviðslistum en ekki styttri brautir því að það er nú svona að jafnaði skilyrðið fyrir því að standa t.d. á sviði í Þjóðleikhúsinu, svona að jafnaði a.m.k., skulum við segja. En ég veit að hjörtu okkar hæstv. ráðherra slá í takt þegar kemur að málum sem þessum þannig að ég hef ekki áhyggjur af þessum málaflokki í hans umsjón.