breyting á ýmsum lögum til að bæta stöðu námsmanna.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þessa skemmtilegu spurningu. Ég verð að hryggja hann með því að ég kem algerlega ískaldur að þessu en eins og áður segir þá tók ég ekki þátt í umfjöllun um þingsályktunartillögu þingmannsins og meðflutningsmanna hans í þingflokki Samfylkingarinnar. Eins og kom fram í ræðu minni hér áðan þá er ég þeirrar skoðunar að þetta eigi að vera jöfnunartæki og mikilvægt tæki í því að búa hér til samfélag jöfnuðar. Þingmaðurinn nefndi áhugaverðan hlut hér áðan sem er það sem hann kallaði einkavæðingu námslánakerfisins en hún átti sér auðvitað stað fyrir margt löngu þegar hætt var að greiða út námslánin jafnóðum, þ.e. við upphaf annar, og ákveðið var að greiða námslánin eftir á. Þá tóku bankarnir að sér að brúa það bil með sínum vöxtum. Það má því segja að einkavæðing námslánakerfisins hafi gerst á þeim tímapunkti.