kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík.
Herra forseti. Við í Samfylkingunni styðjum þetta mál sem sterkt ákall kom um á íbúafundi Grindvíkinga í Laugardalshöll í janúar. Út frá því ákalli hefur verið unnið. Við styðjum málið og við styðjum allar breytingartillögur meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar en við gerum athugasemdir við 6. gr. þar sem talað er um að ráðherra geti ráðstafað fjármunum úr Náttúruhamfaratryggingu Íslands til félagsins sem um ræðir og það er vegna áhrifa og óvissu á rekstrarumhverfi sjóðsins. Ég vil þakka fyrir samstarfið eins og aðrir í nefndinni. Það reyndi svolítið á. Þetta er þyngra mál heldur en rekstrarstuðningurinn og enginn einn hefur fengið allt sem hann vildi. Ég hefði t.d. viljað fá 98% viðmið á brunabótamatinu en ég get vel sætt mig við rökstuðninginn sem er á bak við 95% viðmiðið. Ég vona að í næstu frumvörpum sem menn tala um að muni koma fram til stuðnings Grindvíkingum verði jafn gott samstarf og hefur verið. Takk fyrir það.