Frestun á skriflegum svörum.
Forseta hafa borist bréf frá félags- og vinnumarkaðsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 442, um greiðslur almannatrygginga, frá Jóhanni Páli Jóhannssyni, á þskj. 322, um atvinnuþátttöku eldra fólks, frá Ingibjörgu Isaksen, á þskj. 324, um búsetuúrræði fatlaðs fólks, frá Bryndísi Haraldsdóttur, á þskj. 617, um endurskoðun á reglum um búningsaðstöðu og salerni, frá Andrési Inga Jónssyni, á þskj. 714, um starfsfólk starfsmannaleiga, frá Valgerði Árnadóttur, á þskj. 999, um útgjöld Tryggingastofnunar, frá Birgi Þórarinssyni, og á þskj. 1015, um aðstoð við einstaklinga sem fengið hafa samþykkta umsókn um fjölskyldusameiningu, frá Inger Erlu Thomsen.
Einnig hefur borist bréf frá mennta- og barnamálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 994, um styttingu náms í framhaldsskólum og fjárframlög, frá Jönu Salóme Ingibjargar Jósepsdóttur.
Þá hefur borist bréf frá dómsmálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 1001, um hjónaskilnaði, frá Andrési Inga Jónssyni.
Að lokum hefur borist bréf frá matvælaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 834, um endurnýtingu örmerkja, frá Njáli Trausta Friðbertssyni.