154. löggjafarþing — 82. fundur,  7. mars 2024.

Samkeppni og neytendavernd.

[11:29]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Frú forseti. Frá upphafi hafa Píratar barist fyrir tjáningarfrelsinu, gagnsæi, aðgengi að upplýsingum og aðhaldi með valdhöfum, rétt eins og frjálsir og öflugir fjölmiðlar. Lýðræðið þrífst ekki án upplýstrar umfjöllunnar um málefni líðandi stundar, ákvarðanir stjórnvalda og afleiðingar þeirra. Sterkir og gagnrýnir fjölmiðlar eru því forsenda þess upplýsta og lýðræðislega samfélags sem Píratar berjast fyrir.

Fyrir síðustu kosningar höfðu stjórnvöld, stjórnmálahreyfingar og vonandi meginþorri almennings miklar áhyggjur af stöðu samfélagsmiðla í lýðræðislegri umræðu. Dæmi undanfarinna ára hafa sýnt að hægt er að hafa mikil áhrif á lýðræðislega umræðu og niðurstöður kosninga með fjáraustri í samfélagsmiðla og fyrirtæki sem misnota sér þær upplýsingar sem þar er að finna. Nú er röðin komin að spunagreindartækni, betur þekkt sem gervigreind. Við erum á mjög varhugaverðum tímamótum í þróun gervigreindar. Tæknin er orðin mjög fullkomin og notkunarmöguleikar stökkbreytast með hverjum deginum. Ríki heims eru annaðhvort að byrja að skoða löggjöf til að ná utan um þessa þróun eða eru ekki enn byrjuð á því. Þangað til löggjöf verður mótuð til að fylgjast með notkun og misnotkun gervigreindar er ómögulegt að segja hvernig henni verður beitt þegar kemur að kosningum, frjálsri fjölmiðlun og lýðræði. Á sama tíma hefur ógnin sem stafar frá samfélagsmiðlum og vinnslu þeirra á persónuupplýsingum gagnvart lýðræðislegri umræðu ekkert minnkað Áhrif þeirra á auglýsingatekjur íslenskra fjölmiðla verða seint ofmetin, sem dregur enn frekar máttinn úr þeim með tilheyrandi fækkun í stétt blaðamanna. Alveg eins og það er almennt viðurkennt að hið opinbera þurfi að tryggja löggæslu, jarðgöng og grunnmenntun er orðið gríðarlega mikilvægt að hið opinbera tryggi óháða, fjölmenna og kraftmikla fjölmiðla á Íslandi. Aðeins þannig höfum við burði til að bregðast við falsfréttum, villandi umræðu og öllu því ófyrirsjáanlega sem gervigreindin í höndum rangra aðila mun bjóða okkur upp á.