Fyrirhuguð kaup Landsbankans á TM.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Kristrúnu Frostadóttur fyrirspurnina. Fyrst vil ég nú segja, af því að hún nefndi hér Íslandsbanka í upphafi, að frumvarp er til samráðs og ekki óeðlilegt að það sé unnið með dágóðum fyrirvara þar sem lögð er til ákveðin aðferðafræði sem höfð er til hliðsjónar við mögulega frekari sölu á eignarhlutum. Þessi mál hafa auðvitað verið í stöðugu uppgjöri í raun og veru allt frá árinu 2022. Ég held að það sé mjög mikilvægt að í þessu frumvarpi er gert ráð fyrir því að Alþingi samþykki þessa aðferð, sem er nákvæmlega það sem ríkisstjórnin lagði áherslu á þegar söluferlið í Íslandsbanka var gagnrýnt, þ.e. að Alþingi hafi ríkari aðkomu að þessum málum.
Hv. þingmaður spyr líka um sölu á Landsbanka. Það er algerlega skýrt af minni hálfu að ég mun ekki taka þátt í því að selja hlut í Landsbankanum. Það liggur skýrt fyrir í eigendastefnu ríkisins að ekki eigi að horfa til þess fyrr en að lokinni sölu á Íslandsbanka. Það var það sem þessi ríkisstjórn ákvað og það er fullkominn skilningur á því að mín hreyfing hefur haft þá skýru sýn að ekki skuli selja hlut í Landsbankanum. Því er þá skýrt svarað hér.
Hvað varðar þá ákvörðun sem hv. þingmaður gerir hér að umtalsefni þá er það svo að ráðuneytið hefur sett eigendastefnu, fjármála- og efnahagsráðuneytið, um að bera skuli meiri háttar ákvarðanir undir Bankasýslu ríkisins. Mér er sagt að það hafi ekki verið gert í þessu máli. Auðvitað má deila um það hvort þetta telst meiri háttar mál en auðvitað er hin almenna reglan sú að viðskiptalegar ákvarðanir bankans eru ekki á borði fjármálaráðherra hverju sinni, en teljist þetta vera meiri háttar ákvörðun skuli bera hana undir Bankasýsluna.