Fyrirhuguð kaup Landsbankans á TM.
Frú forseti. Skil ég hæstv. forsætisráðherra rétt að hún telji það ekkert tiltökumál að það sé búið að taka þá ákvörðun að ríkisvæða eigi stórt tryggingafyrirtæki hér á landi? Þessi sama ríkisstjórn ber fyrir sig að sala á eftirlifandi hlut í Íslandsbanka eigi að fjármagna til að mynda uppkaup á húsnæði frá Grindavík. Þetta er risastórt pólitískt mál. Síðan kemur 29 milljarða kr. verðmiði og það er ekki gerð nein athugasemd við það heldur talað um að Landsbankinn hafi einfaldlega litið fram hjá Bankasýslunni. Hver er ábyrgð ríkisstjórnarinnar í þessu máli? Hver er ábyrgð hæstv. fjármálaráðherra í þessu máli? Hefur þetta ekki verið rætt? Málið hefur verið til umfjöllunar á vettvangi stjórnar Landsbankans í að verða 5–6 mánuði. Þetta er ekki almenn rekstrarleg ákvörðun sem snýr að ráðningu framkvæmdastjóra eða starfsfólks, þetta er risastórt inngrip á fjármálamarkaði, risastór breyting á eigendastefnu ríkisins. (Forseti hringir.) Og hæstv. forsætisráðherra ætlar að koma sér undan að svara þessu máli með því að segja að þau hafi ekki verið látin vita (Forseti hringir.) af þessu máli.