154. löggjafarþing — 88. fundur,  19. mars 2024.

framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2024--2027.

584. mál
[15:05]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég er nú ekki viss um að allir í þessum þingsal séu sammála því að það þurfi ekki þinglega meðferð við svona plögg þar sem þingið hefur þó tækifæri til þess einmitt að fara betur ofan í og gera athugasemdir o.s.frv. til þess að reyna að hafa áhrif inn í vinnu nefndar t.d. og annað slíkt, sem verður einmitt, eins og hv. þingmaður nefndi hér áðan, tilefni til þess að einhverju er hugsanlega breytt. En ég átta mig á því hvað hv. þingmaður er að fara, hafandi setið með honum í fjárlaganefnd lengi, varðandi öll slík markmið og mælikvarða sem hér eru undir og hvað á að gera. Það á eftir að útfæra það nánar. En ég er samt sem áður sammála þeirri nálgun sem hér er. Hér er gerð tilraun til þess að meta kostnaðinn á þeim tíma sem málið er lagt fram. Við þekkjum það svo vel bæði tvö að á hverju ári endurskoðum við fjármálaáætlun, ekki vegna þess að ekki (Forseti hringir.) sé gert ráð fyrir einhverju í upphafi heldur vegna þess að það eru breytingar (Forseti hringir.) sem þarf oft að kostnaðarmeta, hvort sem það er nú vegna vaxta og verðbólgu eða einhvers annars.