niðurdæling á vatni í Straumsvík.
Virðulegi forseti. Sjöunda þáttaröð eldgossins á Reykjanesi er hafin, hófst um helgina og stendur enn. Við vitum hvernig hefur farið fyrir Grindavík í þeim jarðskjálftum sem þar hafa dunið yfir undanfarin þrjú ár og við vitum hvaða afleiðingar það getur haft ef jarðskjálftar verða á sprungusvæðum. Nú stendur til að fara að dæla niður 75 milljónum lítra af íslensku ferskvatni, 2.500 lítrum á sekúndu, í Straumsvík, nokkrum hundruð metrum frá sprungusvæði í íbúabyggð. Ég hef oft sagt það og hef sagt það áður hér á Alþingi að það er hægt að vera heimskur og það er hægt að vera heimskari en það fær gjörsamlega gullverðlaun í heimsku að ætla að láta sér detta það í hug að leyfa þetta. Á sama tíma og gos er á Reykjanesi þá stendur til að dæla niður líka milljónum lítra af sjó í Krýsuvík sem er á gossvæði. Ég spyr: Bíddu, hvernig í ósköpunum getum við látið okkur detta þetta í hug? Ég vil fá svör frá hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hvort hann ætlar að leyfa þetta. Við erum að tala um það að á Hellisheiði var 1.000 tonnum á mánuði dælt niður. Við erum að tala um í Straumsvík 250 sinnum meira, 250.000 tonn á mánuði, örstutt frá byggð á Reykjanesi sem er eldvirkt svæði. Fyrir utan þessa ótrúlegu sóun á 2.500 lítrum af vatni á sekúndu, hreinu vatni, sem á að dæla þarna niður. Ætlar hann að leyfa þetta?