vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.
Virðulegi forseti. Ég hef verulegar áhyggjur af því hvað ráðherrar ríkisstjórnarinnar eru í engu sambandi við raunveruleikann. Þeir tala hér um að þeir séu stoltir af efnahagsástandinu. Þeir eru stoltir af heilbrigðiskerfinu, þeir eru stoltir af árangrinum undanfarin ár. Ég vil bara færa þeim skilaboð frá almenningi: Staðan hefur sjaldan verið verri. Ég er á leigumarkaði og þarf brátt að flytja í annað skiptið á þessu ári, og það er bara apríl, með drengina mína tvo. Þetta er raunveruleiki fólks í landinu. Allar tekjur fara í leigu og reikninga og ekkert er eftir. Eins og staðan er í boði þessarar ríkisstjórnar þarf ég, einstæð efnalítil móðir, að forgangsraða fjármununum þannig að ég þarf að velja á milli þess að gefa börnunum mínum að borða eða borga reikninga. Þetta á því miður við um þúsundir annarra í þessu samfélagi sem við búum í. Þökk sé þessari ríkisstjórn fyrir það.
Heilbrigðiskerfið er í molum, vegakerfið er í molum, flestir innviðir eru í molum. Formennirnir þrír segjast gera svo mikið fyrir þjóðina. En er það rétt? Eru þeir ekki einmitt bara að gera alls kyns hluti fyrir elítuna? Láglaunafólkið hefur ekki fengið neitt frá þeim. Nú er millistéttin eiginlega komin á sama stað. Ég vona svo innilega að ráðherrarnir hugsi sinn gang og kynni sér raunverulega stöðu fólksins í landinu. Þessi ríkisstjórn hefur gjörsamlega brugðist þjóðinni og þess vegna lýsi ég yfir vantrausti á hana.