154. löggjafarþing — 97. fundur,  17. apr. 2024.

vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.

1038. mál
[22:37]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við greiðum hér atkvæði um vantrauststillögu á ríkisstjórnina, tillögu sem hér í þingsal hefur einmitt verið sögð byggð á sandi. Hér situr ríkisstjórn sem hefur unnið saman frá árinu 2017, sterkur meiri hluti sem hefur unnið að miklum framfaramálum fyrir þjóðina, og við munum sitja út tímabilið eins og okkur var treyst fyrir og eins og við vorum kjörin til, til þess að halda áfram því mikilvæga verkefni að ná verðbólgu og vöxtum niður sem er ein mesta kjarabótin sem við getum unnið að fyrir íslenska þjóð. Ég vona í framhaldinu að við sem þingmenn nýtum tímann vel til að vinna að þessum málum í stað þess að vera að þyrla upp ryki og höldum áfram vinnunni. Því segjum við í Framsókn nei.