154. löggjafarþing — 97. fundur, 17. apr. 2024.
vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.
1038. mál
Virðulegi forseti. Við greiðum hér atkvæði um þessa tillögu um vantraust á ríkisstjórnina. Við vantreystum ríkisstjórninni. Það hafa mörg haft áhyggjur af því að þessi tillaga muni hreinlega þjappa saman ríkisstjórninni. En hvernig getur það verið slæmt? Ríkisstjórnin gæti ekki verið sundraðri en hún er núna. Í versta falli verður hún samstiga, kemur einhverju í verk og hættir að gera ekki neitt. Mögulega verður hún felld og það yrði gott.