154. löggjafarþing — 97. fundur,  17. apr. 2024.

vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.

1038. mál
[22:41]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins mun að sjálfsögðu ekki styðja þessa vantrauststillögu sem við teljum að byggist á sandi og sýndarmennsku og er til þess eins fallin að tefja fyrir framgangi mikilvægra mála. Ríkisstjórnin og stjórnarmeirihlutinn eru með sterkt og skýrt lýðræðislegt umboð til að vinna að og klára mál sem skipta fólkið í þessu landi miklu máli og það ætlum við okkur að gera. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)