Ég fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir sína yfirferð hér í dag þegar við ræðum fjármálaáætlun fyrir árin 2025–2029. Í þessari fjármálaáætlun koma fram mikilvægar aðgerðir á málefnasviði hæstv. ráðherra. Má þar nefna að fjármagn verður veitt í byggingu nýs fangelsis í stað Litla-Hrauns. Einnig kemur fram að 700 millj. kr. verði veittar til Landhelgisgæslunnar á árunum 2025–2026 og 145 millj. kr. til styrkingar almannavarna. — Löngu tímabær aðgerð með fangelsið, vil ég taka fram, og ég fagna því að við séum farin að sjá til lands í því.
Þessi ríkisstjórn hefur í gegnum bæði kjörtímabil sín lagt áherslu á að verja viðkvæma innviði og velferð. Hvort sem við höfum verið að kljást við Covid, verðbólgu eða náttúruhamfarir höfum við lagt áherslu á að standa með framlínufólkinu okkar og verja kerfin okkar. Það er augljóslega vilji þingsins að löggæsla sæti ekki aðhaldi, þar sem hv. fjárlaganefnd hefur ítrekað bætt upp aðhaldskröfu í fjárlagafrumvarpi.
Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvort hún telji að sú viðbót sem komið hefur inn í löggæsluna á undanförnum árum sé næg í ljósi þess að málaflokkurinn hefur stöðugt sætt aðhaldskröfu.