tekjustofnar sveitarfélaga.
Virðulegur forseti. Ég gæti ekki verið meira sammála hv. þm. Steinunni Þóru Árnadóttur. Aðgengi ætti að vera okkur ofarlega í huga, alltaf, og ætti að vera straumlínulagað við alla stefnu stjórnvalda. Ég fagna þessu máli. Það er mikilvægt að við séum að tryggja að framkvæmdir geti haldið áfram með góðum dampi varðandi þetta frábæra framtak. En það er einmitt þetta, þetta á ekki að vera framtak. Þetta á að vera stöðug vinna vegna þess að fatlað fólk á rétt á aðgengi að samfélaginu til jafns við aðra. Þess vegna vildi ég endurtaka athugasemd sem ég gerði við, hvort það var ekki seinni umræðu þessa máls sem sneri að því að með frumvarpinu væri ekki ástæða til að ætla að það hefði áhrif á alþjóðlegar skuldbindingar Íslands. Þetta kemur fram í greinargerðinni með frumvarpinu. Ég vildi bara árétta að þó að frumvarpið hafi ekki neikvæð áhrif á þær mannréttindaskuldbindingar sem við höfum þá er þetta vissulega skref í þá átt að uppfylla þær og það er alveg rétt að taka það fram líka. Þetta er bara áminning um að við eigum almennt að greina hvaða áhrif frumvörp hafa á mannréttindi vegna þess að þau eiga alltaf að koma fyrst og alltaf að vera okkur að leiðarljósi í þeirri lagasetningu sem við framkvæmum hér.