154. löggjafarþing — 108. fundur,  7. maí 2024.

Þjóðarsjóður.

881. mál
[17:32]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil ítreka að skuldastaða okkar er mjög góð og er komin aftur nærri þeim 30% sem fjármálareglurnar segja til um og mun fara lækkandi á tímabili fjármálaáætlunar, nálgast það enn frekar á því tímabili. Ég ítreka líka að við munum ekki fara að greiða í sjóð, þótt við myndum stofna hann með lögum, fyrr en við höfum náð tilteknu hlutfalli, náð þessum 30%.

Ég ræddi það í fyrra andsvari við annan hv. þingmann að mér finnst bara mikilvægt að sú umræða verði tekin hvort það séu fleiri auðlindir en orkuauðlindir sem greiði í slíkan sjóð, mér finnst tækifæri til þess og eru ábendingar vel þegnar. Málið verður tekið til skoðunar og ég vona að við fáum bara frjóa umræðu í samfélaginu og núna í þingsal við 1. umræðu og getum síðan í framhaldinu haldið áfram að þróa þennan sjóð sem ég tel að sé mikilvægur inn í framtíðina.