154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

Frestun á skriflegum svörum.

[13:32]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseta hafa borist bréf frá félags- og vinnumarkaðsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 442, um greiðslur almannatrygginga, frá Jóhanni Páli Jóhannssyni, á þskj. 1114, um kostnað við auglýsingagerð, kynningarmál, viðburði og ráðstefnur, á þskj. 1218, um styrki til félagasamtaka, og á þskj. 1283, um nefndir á vegum ráðuneytisins og kostnað vegna þeirra, allar frá Berglindi Ósk Guðmundsdóttur, á þskj. 1156, um fæðingarstyrki og greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, og á þskj. 1416, um þjónustu og úrræði Vinnumálastofnunar er miðast að ungu fólki sem er ekki í vinnu, virkni eða námi, báðar frá Líneik Önnu Sævarsdóttur, á þskj. 1292, um kostnað vegna umsókna um alþjóðlega vernd, frá Njáli Trausta Friðbertssyni, og á þskj. 617, um endurskoðun á reglum um búningsaðstöðu og salerni, frá Andrési Inga Jónssyni.

Einnig hafa borist bréf frá utanríkisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 1639, um sendiráð eða sendiskrifstofu á Spáni, frá Gísla Rafni Ólafssyni, á þskj. 1496, um nefndir á vegum ráðuneytisins og kostnað vegna þeirra, á þskj. 1497, um styrki til félagasamtaka, og á þskj. 1495, um kostnað við auglýsingagerð, kynningarmál, viðburði og ráðstefnur, allar frá Berglindi Ósk Guðmundsdóttur.