154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[20:51]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni fyrir andsvarið. Það er hárrétt, það er gríðarlega mikilvægt að regluverk Evrópusambandsins sem lýtur að hinum stafræna markaði sé innleitt sem allra fyrst og að við séum samkeppnisfær hvað það varðar. Ég tel að dæmið sem hv. þingmaður nefndi sýni fram á að við séum það ekki. Ég held líka að það að innleiða þessa mikilvægu reglugerð með þessari svokölluðu tilvísunaraðgerð, þar sem 2. gr. í frumvarpinu er einfaldlega lögfesting sem segir að reglugerð nr. 2018/1807, um ramma um frjálst flæði ópersónugreinanlegra upplýsinga, skuli hafa lagagildi hér á landi, sé ekki nægjanlegt fyrir t.d. erlenda fjárfesta sem hafa áhuga á að fjárfesta í nýsköpunarfyrirtækjum í tæknigeiranum hérna. Þeir horfa strax á þetta og segja: Nei, það er mjög frumstæð löggjöfin á Íslandi. Þeir eru ekki búnir að innleiða þessar reglugerðir um stafræna markaðinn og stafræna þjónustu og þeir eru líka að innleiða þessa reglugerð um frjálst flæði ópersónugreinanlegra upplýsinga með þessum hætti. Við ætlum ekki að fjárfesta þarna.

Ég man að ég var að vinna erlendis í banka þar sem við vorum að innleiða persónuverndarreglugerðina. Þá leit bankinn svo á og fyrirtækin sem voru að gera það að þau hefðu samkeppnisforskot ef þau væru búin að innleiða reglugerðina nægilega vel og væru betri í því en aðrir. Það er nákvæmlega það sama með löggjöf. Það er samkeppni milli ríkja að fá fjárfestingar á þessu sviði og við erum ekki að standa okkur hvað það varðar.

Ein reglugerð sem ég veit ekki til að hafi verið innleidd eða vakið mikla athygli, a.m.k. hefur hún ekki vakið athygli í samfélaginu, er reglugerðin um netöryggi, NIST minnir mig að sé skammstöfunin. Hún er gríðarlega mikilvæg. Vandamálið innan Evrópu er það að við erum ekki nægilega stór markaður til að fara að skala upp nýjungar. Þú ferð til Bandaríkjanna ef þú ætlar að ná markaðshlutdeild. Þú getur ekki farið til London eða Kaupmannahafnar til að skala upp yfir allan markað Evrópusambandsins. Þú ferð til Bandaríkjanna ef þú ætlar að slá í gegn.