154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[20:53]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Bara til að uppfræða hv. þingmann þá skilst mér að NST1-löggjöfin sé komin inn í lög hér en NST2-löggjöfin sé það ekki. Þetta var náttúrlega latína fyrir flesta hérna inni.

Hv. þingmaður kom inn á mál sem skiptir miklu máli. Í tæknigeiranum skiptir rosalega miklu máli að þeir sem koma með fjármagn til að styðja við þessi fyrirtæki séu ekki að stöðva að koma með fjármagnið vegna þess að við uppfyllum ekki ákveðin skilyrði innan landsins. Þá nákvæmlega gerist það sem hv. þingmaður benti á sem er að fjárfestar sjá þetta sem ákveðna hættu og ákveða þar af leiðandi að koma ekki með fjármagn inn í frumkvöðlafyrirtæki. Það getur haft mjög slæm áhrif á frumkvöðlasamfélagið þegar það eru einhverjar svona reglur sem við erum ekki búin að klára að innleiða og það stoppar þá í því að koma með sína tækni og sínar hugmyndir.

Mig langaði að spyrja hv. þingmann, af því að ég veit að hv. þingmaður getur verið krítískur á Evrópusambandið og þann fjölda reglugerða sem kemur þaðan: Nú sá ég yfirlit um daginn sem sýndi að t.d. Lúxemborg innleiðir bara hlutina beint og þeirra skuldahali gagnvart Evrópusambandinu í innleiðingu er núll. Ég veit ekki hvaða aðferð þeir nota en mig langaði að spyrja hv. þingmann hvaða lausn hann sér í þessu varðandi innleiðingar á reglugerðum og hlutum hér.