frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni ágæta yfirferð og taka undir með honum að allt of oft sjáum við Evrópuregluverk fljóta of ljúflega í gegn án umræðna. Við eigum að hafa afstöðu til þess sem við erum að innleiða. Þó að EES-samningurinn gefi okkur kannski ekki endalaust svigrúm þá eigum við að hafa skoðun á því og sú skoðun á auðvitað að birtast miklum mun fyrr í ferlinu heldur en hér í þingsal. Ég hef áhyggjur af því að okkar fulltrúar í Brussel séu ekkert alltaf á tánum þegar kemur að því að halda okkar sjónarmiðum á lofti.
Hér er frumvarp sem snýst um sameiginlegan gagnamarkað og að koma í veg fyrir óeðlilegar hindranir á flæði upplýsinga innan EES-svæðisins. Hin hliðin á þeim peningi gæti snert á upplýsinga- og tjáningarfrelsi. Af því að hv. þingmaður er fyrrverandi blaðamaður langar mig að velta því upp með honum (Forseti hringir.) hvort það hefði kannski þurft að vera með IMMI-gleraugun, gleraugu landsins sem samþykkti þingsályktunartillögu um að Ísland skapi sér lagalega (Forseti hringir.) afgerandi sérstöðu varðandi upplýsinga- og tjáningarfrelsi, hvort það væri eitthvað sem okkar fulltrúar í Brussel hefðu mátt skoða (Forseti hringir.) áður en þetta var sent til okkar.
(Forseti (ÁsF): Það er ósanngjarnt gagnvart öðrum þingmönnum að misnota ræðutímann.)