154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[21:14]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég kom upp í andsvörum fyrr í kvöld af því að það sló mig aðeins þegar ég fór að skoða vinnuna við þetta mál og langaði þess vegna að leggja stuttlega orð í belg varðandi þessi sjónarmið hv. þingmanns um innleiðingar, um gullhúðun. Yfirferð þingmannsins var áhugaverð um þetta tungutak margra Sjálfstæðismanna. Maður heyrir stundum talað um blýhúðun í þessu samhengi. Þegar við erum að innleiða þá er eitt krafan til þingsins um hvernig við tryggjum að við fáum fram umsagnir og ólík sjónarmið en svo er hitt að þegar verið er að gullhúða eða blýhúða erum við, eins og mér fannst þingmaðurinn vera að segja, farin að fara gegn markmiðinu um þetta samræmi sem öll reglusetningin gengur út á. Ég vildi þakka þingmanninum fyrir þau sjónarmið og taka undir með honum. Ég ítreka það sem ég sagði fyrr í kvöld, að mér finnst vanta dálítið upp á vinnubrögðin í þessu máli.