154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[21:15]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég held að það skipti máli að eftirláta ekki andstæðingum Evrópusambandsins og Evrópusamvinnunnar alla umræðu um gullhúðun og hvers vegna það getur verið skaðlegt þegar ríki ganga lengra heldur en lágmarkskröfur Evrópureglnanna kalla á upp á trúverðugleika og orðspor Evrópusamvinnunnar. Ég er að mörgu leyti þakklátur Sjálfstæðisflokknum fyrir að hafa borið þessa umræðu til Íslands því að þótt hún eigi kannski rót sína hjá einhverjum Brexit-sinnum og svoleiðis í Bretlandi og hjá dagblaðinu The Telegraph þá er þetta mikilvæg umræða. (Forseti hringir.) Eins og ég kom inn á hér áðan hafa stofnanir Evrópusambandsins sjálfar verið að vara við þeim vinnubrögðum sem ganga undir þessu nafni, gullhúðun.