154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[21:17]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, það er mikið kjarnaatriði hverjir það voru sem báru þessa umræðu hingað heim. Það er auðvitað dálítið kómískt til þess að hugsa að sá flokkur sem hefur innleitt þetta pólitíska samtal á Íslandi um gullhúðun og blýhúðun er sá sem á mestu sökina í þessu samhengi. Við erum að fá mál hérna inn eins og þetta hér í kvöld sem við ættum í sjálfu sér að geta afgreitt, en vegna þess hvernig vinnubrögðin hafa verið í Stjórnarráðinu erum við alltaf í þessari tortryggni. Erum við í reynd að innleiða eitthvert regluverk sem er til samræmis við annað í Evrópu eða var Sjálfstæðisflokkurinn hér að iðka sína eftirlætisiðju sem er að blýhúða?