154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[22:28]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Andrési Inga Jónssyni fyrir andsvarið. Það fór ekkert á milli mála í þessu andsvari að hv. þingmaður hefur mikla og staðgóða þekkingu á því sem við erum að ræða og ég vil þakka honum innilega fyrir að koma hingað og ræða um þetta. Spurningin var í sjálfu sér svolítið í þá veru hvers vegna íslensk stjórnvöld eru oft svona sein á ferðinni þegar kemur að þessum málum. Kannski gæti maður svarað því til að manni finnst það almennt hafa verið þannig í íslensku samfélagi, ekki bara þegar kemur að Evrópusamvinnu eða einhverju mikilvægu regluverki sem við ætlum að taka upp þar, að íslensk stjórnvöld eru almennt sein til hlutanna í öllu mögulegu og ómögulegu. Ég gæti alveg trúað því, kannski í bland við það að menn vilja ef til vill á einhvern hátt vanda sig. Ég tek alveg undir það að við erum nokkrum árum á eftir með þetta. Það liggur auðvitað í eðli samstarfsins að við erum alltaf aðeins á eftir. Ég átta mig svo sem ekki alveg á því hver eðlilegur tími er í þessu en mér finnst a.m.k. mjög gott að hv. þingmaður taki þetta upp. Ég hjó líka eftir því að hv. þingmaður gerði samanburð á milli þess sem gerist innan Evrópusambandsins og í Bandaríkjunum. Ég vil nefna að það á auðvitað ekki bara við um þetta svið heldur ótal margt annað. Þó að margt sé mjög gott í Bandaríkjunum, við drögum það ekkert í efa, held ég að almennt gildi um regluverk innan Evrópusambandsins að þar sé tekið tillit til ríkari þátta og eru löggjöfin og regluverkið kannski oft mannlegri en það sem tíðkast í villta vestrinu, eins og hv. þingmaður orðaði það.