154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[22:38]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og hlý orð í okkar garð. Það myndi sannarlega sóma sér vel ef sex manna þingflokkur Flokks fólksins kæmi saman á Evrópuþinginu, gengjum við einhvern tímann í Evrópusambandið, en guð forði okkur frá því. Ég er viss um að Flokkur fólksins myndi örugglega gæta hagsmuna Íslands vel á Evrópuþinginu, sex af 705. Það myndi örugglega heyrast í okkur þar, því get ég lofað. En vandamálið innan EES-samstarfsins er að við höfum ekki verið að gæta hagsmuna okkar innan EES-samningsins. Það er stóra vandamálið. Við gengum Noregskonungi á hönd 1262. Tíu árum seinna kom lögbók sem heitir Járnsíða. Íslendingar höfnuðu henni af því að þar var ekki tekið tillit til hagsmuna Íslands. Tíu árum eftir það fengum við Jónsbók, þar sem tekið var tillit til hagsmuna Íslands og enn þá í dag eru kaflar úr Jónsbók gildandi lög í landinu. Þessi lögbók var í 400 ár. (Forseti hringir.) EES-samningnum verður stefnt í hættu ef við gætum ekki okkar hagsmuna þar og ef hann verður ekki sniðinn að okkar þörfum líka. (Forseti hringir.) Það er stóra vandamálið í allri EES-umræðunni. Innleiðingin á þessu frumvarpi hér, þessari reglugerð, er ekki í samræmi við það að við séum að gæta hagsmuna okkar. Því mun ég koma að í seinni ræðu minni. (Forseti hringir.) Við erum ekki þátttakendur í gagnahagkerfinu með þessari innleiðingu eins og tilgangur reglugerðarinnar er.

(Forseti (LínS): Forseti minnir hv. þingmann á að virða ræðutíma.)