frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þetta. Ég get svo sem algerlega verið hjartanlega sammála inntakinu í því sem kom fram hjá hv. þingmanni og er reyndar oft að benda á þetta í umræðum um Evrópusambandið. Reyndar finnst mér það almennt vera þannig þegar við Íslendingar erum að tala um okkur í einhvers konar hagsmunaumræðu eða fjölþjóðlegu samstarfi að við erum alltaf svo mikið að velta því fyrir okkur hvað við fáum út úr því, sem er bara mjög eðlilegt að gera, en við ræðum oft miklu minna hvað við getum lagt til þess. Hér eru nefnd sjávarútvegsmálin og ég get svo sannarlega tekið undir að rödd okkar í þeim málaflokki er auðvitað miklu stærri heldur en fjöldi landsmanna kannski gefur til kynna.
Mig langar líka að nefna í þessu samhengi að þegar ég er að tala um Evrópusambandið almennt þá ætla ég ekki að henda út þeim misskilningi að ég sé endilega hrifinn af öllu því sem þaðan kemur. Ég er t.d. ekkert endilega hrifinn af öllu sem gerist í landbúnaði í Evrópu, ekkert frekar en hér á Íslandi, bara svo að ég nefni dæmi. En þegar maður veltir fyrir sér heildarhagsmunum landsins þá held ég að þeim sé betur borgið þarna inni.
En ég tek hjartanlega undir þetta. (Forseti hringir.) Það er heilmikið sem við Íslendingar getum lagt af mörkum í svona samstarfi og samvinnu. (Forseti hringir.) Við eigum ekki alltaf að tala bara um það sem við getum fengið heldur líka það sem við getum gefið.