154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[23:10]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég verð að segja að ég er algerlega sammála honum að við séum ekki að gera þetta með nægilega góðum hætti. Hann kom inn á það hvernig persónuverndarreglugerðin var innleidd, að hún hafi verið gerð í flýti, í tímaskorti og hafi verið gerð með ákveðnum hætti. Eins og hún var gerð, og ég las hana þá, voru aðalatriðin tekin inn í lögin og svo var þýðingarfylgiskjal við lögin sem var þýðing á persónuverndarreglugerðinni. Ég kom inn á það hér áðan að það hafi verið vitlaus þýðing. Þar var verið að tala um frjálsa miðlun upplýsinga, ekki frjálsan flutning. Miðlun er það þegar ég er að upplýsa þig um eitthvað en þegar ég flyt eitthvað til þá læt ég það bara í fangið á þér og þú getur unnið með það. Það var það sem var verið að gera, það var persónuverndarþátturinn og hinn efnahagslegi þáttur sem var flutningur gagnanna, vegna þess að fyrirtæki eru að flytja gögnin út um allan heim, til Bandaríkjanna, til Póllands og til þeirra staða sem er ódýrast að vinna á. Þannig er nú það.

Ég held að við séum ekki að innleiða þessa reglugerð með sama hætti og við ættum að vera að gera, a.m.k. með sama hætti og með sömu gæðum og við gerðum með persónuverndarreglugerðina. Það er grundvallaratriði og það þykir mér mjög miður miðað við (Forseti hringir.) mikilvægi reglnanna. Það er nægilegt að lesa bara innganginn að reglugerðinni, (Forseti hringir.) þróun gagnahagkerfisins og undirstöður nútímahagkerfis.