frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Frú forseti. Jú, þetta gerði gagn. Ég þakka hv. þingmanni fyrir það. Samt sem áður sit ég föst á þessum stað, að þessi reglugerð gildir ekki um neitt annað en það sem þegar er innan samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, EES. Eins og hv. þingmaður benti mér á þegar ég var í bullinu hérna áðan í ræðunni þá eiginlega gildir þetta bara um það. Þannig að ég hef velt fyrir mér: Hvernig er þá hægt að koma þessu heim og saman ef við erum þegar með þessar reglur? Nema þetta sé þá bara um það sem við erum að tala um; gagnaver og gagnagrunna og hvaða gagnagrunnur er um eitthvað — við skulum segja bara sem dæmi að þetta eru ákveðnir grunnar á heilbrigðissviði, við förum í ættfræði, við búum til ákveðinn grunn um okkur hér og þar og annað slíkt, hvort þetta sé einhvern veginn svoleiðis, þó að það sé náttúrlega ekki ættfræði en samt sem áður eitthvað þar sem geymdar eru ákveðnar persónuupplýsingar þar sem er samt sem áður búið að safna ákveðnum gögnum í risastórt ský um eitthvað ákveðið og þangað er hægt að leita þrátt fyrir að ekki sé hægt að greina frá hverjum upplýsingarnar koma, ef ég skil þetta rétt. Þetta hlýtur kannski bara að vera partur af prógramminu eins og þar stendur. En ég veit það ekki, ég er voðalega undrandi á þessari klásúlu sem kemur fram í greinargerðinni með reglugerðinni, að það sé hvort sem er ekki hægt að ná utan um neitt annað en það sem þegar er innan EES-samningsins, ef ég skil þetta rétt.