154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

svör ráðherra við fyrirspurnum.

[15:07]
Horfa

Lenya Rún Taha Karim (P):

Virðulegi forseti. Þann 9. október 2023, fyrir tveimur setum á Alþingi, sendi ég inn skriflega fyrirspurn til hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra þar sem ég spurði um stöðu fjórða orkupakkans í innleiðingarferlinu og hvar það mál væri statt hjá sameiginlegu EES-nefndinni ásamt öðrum spurningum. Það eru 175 virkir dagar síðan ég lagði þessa fyrirspurn fram. Ég velti því bara fyrir mér hvort þetta sé í samræmi við þingskapalögin, nánar tiltekið 57. gr. þingskapalaga þar sem er tekið skýrt fram að hæstv. ráðherrar hafa 15 virka daga til að svara skriflegri fyrirspurn. Ég velti því fyrir mér hvort það hafi verið eðli spurningarinnar sem hefur leitt til þess að það hefur dregist á langinn að svara þessu, hvort þetta sé einhver heit kartafla. Ef við erum ekki komin langt í innleiðingarferlinu þá er það bara allt í góðu, þetta hefur ekki einu sinni verið tekið upp í EES-samninginn og þá hefði hæstv. ráðherra bara getað svarað því þannig. En þar sem orkumál hafa verið svolítið mikið í umræðunni undanfarið þá held ég að það væri verulega til bóta að fá svar við þessari fyrirspurn.