breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta. Mig langar þá í framhaldinu að spyrja hv. þingmann út í umræðuna eins og hún er búin að vera núna undanfarin misseri. Við vorum svolítið að tala um þetta hérna á dögunum þegar við vorum að ræða málið um forgangsorkuna fyrir heimilin, fyrirtækin og mikilvæga innviði, sem við kláruðum nú reyndar ekki. En það er alltaf verið að takast á um það hvort það sé orkuskortur eða ekki. Menn skiptast svolítið í tvö horn með þetta. Ég hef stundum skilið a.m.k. suma þingmenn Pírata þannig að menn telji að það sé enginn sérstakur orkuskortur og það sé engin sérstök knýjandi þörf á því að virkja mikið meira og vísa þá jafnvel í það hversu mikið af orkunni fer í stórnotendurna, sem er vissulega rétt. Það er auðvitað bundið í samninga til áratuga eins og við þekkjum. Mig langaði bara að fá svona skýrt svar frá hv. þingmanni um það: Er það afstaða Pírata almennt að við þurfum í raun og veru ekki að afla mikið meiri orku? Það sé nægjanlegt að styrkja flutningskerfið, fá meira út úr þeim virkjunum sem eru fyrir en við þurfum kannski ekki mikið af nýjum virkjunum til þess t.d. að fara í orkuskiptin og það væri þá eftir atvikum möguleiki á því að endurnýja ekki þá samninga sem gætu runnið út hjá stórnotendum. Þetta er, eins og ég hef áður sagt, fyrir mér pínu varasamt viðhorf að gefa það út strax að það verði ekki einhverjir langtímasamningar til stórnotenda endurnýjaðir. Mér finnst að við eigum ekkert endilega að vinna þannig að ganga út frá því sem gefnu. Ég myndi gjarnan vilja fá afstöðu hv. þingmanns til þessa.