breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Virðulegi forseti. Mig langar að þakka hv. þingmanni fyrir bara mjög einlæga spurningu og að biðja um einlægt svar frá mér. Er orkuskortur raunverulegur á þessu landi? Það fer náttúrlega bara eftir því hvernig þú skilgreinir orkuskort. Akkúrat núna erum við að framleiða rosalega mikla raforku en staðan er bara þannig að stórnotendur með stórnotendasamninga, sem hafa nota bene samið um skerðanlega orku, eru að fá mjög stóran hluta af þeirri orku til sín. Þegar við reiðum okkur að miklu leyti á vatnsaflsvirkjanir er auðvitað möguleiki á því að það verði slæm vatnsár og þar af leiðandi verður framleiðslugeta virkjana ekki nógu mikil og þær skila ekki þessu hlutfalli af afgangsorku sem hefur verið til staðar. Það sem ég held að fólk sé aðeins að ruglast á í stöðunni í orkumálum hér á landi er raforkuskortur og framboðsskortur á raforku. Akkúrat núna vil ég frekar tala um framboðsskort raforku af því að raforkan sem framleidd er alveg næg, hún er meira en nóg og við erum að framleiða miklu meira af raforku miðað við nágrannalönd okkar per tíu manneskjur, minnir mig, ég man ekki hvernig hlutföllin eru. Við erum náttúrlega bundin af ýmiss konar lögum og viðskiptaskilmálum. Það er búið að gera langtímasamninga við ákveðna stórnotendur til 40 ára og lagaumhverfið er þess eðlis að það er ekki hægt að rifta þeim samningum. En ég velti því bara fyrir mér hvers vegna sumum raforkusölum og framleiðendum þykir það svo ótrúlega íþyngjandi og óþægilegt að grípa til þessarar heimildar að skerða orku að einhverju marki hjá stórnotendum þegar staða eins og nú er uppi núna blasir við.