154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.

898. mál
[20:12]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það getur bara vel verið rétt hjá hv. þingmanni að það sé fullmikil vinna að búa til þessa gjaldskrá og viðhorfið er einmitt þetta sem ég verð að koma inn á líka, þessi hugmynd um að allt þurfi að vera sjálfbært sem einhverju máli skiptir fyrir samfélagið. Það sem leitar alltaf á mig á móti er að mér finnst að fyrirtæki og stofnanir sem njóta góðs af regluverki eigi líka eitthvað að greiða fyrir það. Mögulega eru leyfisgjöld betri nálgun gagnvart því, en þetta er skref í rétta átt.

Mig langaði líka að bregðast við því sem hv. þingmaður sagði um að þessu landi væri stjórnað af hagsmunaöflum. Mín viðbrögð við þessu eru að hagsmunaöfl eiga allt of greiðan aðgang að stjórnvöldum á Íslandi. Ég myndi orða það þannig og ég myndi gjalda varhuga við því a.m.k. að segja að landinu sé stjórnað af þeim, en þau hafa allt of mikil áhrif. Ástæðan fyrir því að ég vil ekki orða þetta hinsegin er að ég vil að fólk viti að það skiptir máli hvað það kýs. Þú getur valið aðra flokka sem láta ekki hafa svona mikil áhrif á sig.