154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

sjúkraskrár og landlæknir og lýðheilsa.

904. mál
[18:42]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Líneik Anna Sævarsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Jakobi Frímanni Magnússyni fyrir andsvarið. Verkefnið er liður í samstarfsverkefni. Í rauninni er verið að smíða sameiginlegt umhverfi fyrir alla Evrópu til þess að miðla upplýsingum. Það er sameiginlega verkefnið. Það þarf svo að vinna eða staðla betur ákveðna vinnu sem þegar fer fram hér á landi við skráningu upplýsinga í sjúkraskrá þannig að þær upplýsingar sem heimilt er að miðla geti farið greiðlega á milli. Ég kann ekki að rekja það allt en eins og fram kom í nefndarálitinu þá snýst vinnan hér dálítið mikið um stöðlun og kóðun á upplýsingum sem eru skráðar í sjúkraskrá nú þegar og verða skráðar í framtíðinni. Þessi styrkur, sem er auðvitað til þess að búa til kerfið í heild, mun að einhverju leyti renna til þess verkefnis, ef ég skil rétt.

Í sjálfu sér settum við okkur í nefndinni ekki nákvæmlega inn í framkvæmdina heldur vorum við auðvitað fyrst og fremst að skapa lagaumgjörðina utan um þetta verkefni þannig að það stæðist allar þær kröfur sem við hér á landi viljum gera til verkefna af þessu tagi, hvort sem það er persónuverndin og umgjörðin öll eða þetta upplýsta samþykki þeirra sem vilja nýta sér það að upplýsingarnar séu aðgengilegar, dvelji þeir í öðru landi eða fari sérstaklega til annars lands til þess að sækja sér heilbrigðisþjónustu. Það sama á þá við um þá sem hingað koma og dvelja hér um tíma og vilja nýta sér heilbrigðisþjónustu hér.