breyting á ýmsum lögum vegna launa þjóðkjörinna fulltrúa og embættismanna.
Forseti. Já, dálítið fyrirsjáanlegt að þetta tilfelli kæmi upp sem hæstv. forsætisráðherra segir að ekki hafi verið hægt að sjá fyrir þegar þessu var breytt. Óhjákvæmilega myndi það koma til að slíkt dæmi kæmi upp að launin væru í rauninni hækkuð það mikið frá síðasta ári að það ætti ekki við á árinu sem það tæki gildi. Þess vegna velti ég fyrir mér svipað og við höfum gert áður, að við erum með fordæmi fyrir því að það séu svona hækkanir í lögum nú þegar. Ég velti fyrir mér af hverju við notum ekki þá fyrirmynd sem við erum þegar með í lögum um almannatryggingar. Af hverju erum við ekki með sömu ákvarðanir um hækkanir þar og gagnvart þeim sem fara með æðstu stjórn á landinu?