154. löggjafarþing — 125. fundur,  19. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum vegna launa þjóðkjörinna fulltrúa og embættismanna.

1160. mál
[15:28]
Horfa

forsætisráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að fara út í smáatriði þess hvernig við breytum réttindum í almannatryggingakerfinu frá einu tímabili til þess næsta. Um þetta hefur mikið verið skrifað. Ég hef skilað skriflegum svörum um efnið sem ég leyfi mér að vísa til. Þetta eru viðmið sem eru skrifuð út í almannatryggingalögin. Alþingi er ekki bundið af þeim. Alþingi tekur sjálfstæðar ákvarðanir, getur hækkað meira og hefur gert það, hefur breytt réttindum, aukið við þau o.s.frv. Þetta eru bara einfaldlega ekki launaákvarðanir. Launaákvarðanir eru annars eðlis.

Hér erum við að tala um 1. júlí og hvort við ætlum að grípa með þessu frumvarpi til ráðstafana til að fyrirbyggja eða koma í veg fyrir að 8% hækkunin verði ella framkvæmd 1. júlí. Við getum síðan rætt um það hvernig við ætlum að hafa fyrirkomulagið til lengri tíma og munum gera það þegar frumvarp kemur fram um það efni í haust. Ég hef margt um það mál að segja og það er ýmislegt sem kemur til greina. Það má alveg sjá fyrir sér að kjörnir fulltrúar myndu fara eftir einhverri allt annarri formúlu en aðrir. (Forseti hringir.) Kannski ættum við bara að leiðrétta laun kjörinna fulltrúa einu sinni á kjörtímabili en fylgja annars verðbólgumarkmiði Seðlabankans.