154. löggjafarþing — 125. fundur,  19. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum vegna launa þjóðkjörinna fulltrúa og embættismanna.

1160. mál
[16:07]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Eins og með svo margt annað þá er ég bara búinn að leysa þetta. Þetta er í breytingartillögu minni við almannatryggingarnar. Þar er ég búinn að afrita útfærsluna fyrir kjörna fulltrúa og æðstu ráðamenn yfir í almannatryggingarnar og bæta við að þó eigi að taka tillit til krónutöluhækkana, sem eru þá ekki fyrir þingmenn og æðstu ráðamenn. Þannig að það er leyst upp á það að gera. Við getum líka farið í hina áttina, þ.e. tekið breytinguna eins og hún er í almannatryggingakerfinu og sett hana á þingmenn og aðra ráðamenn en bæta þá líka við — það þarf að gera það í almannatryggingalögunum — og taka tillit til krónutöluhækkana á almennum vinnumarkaði, opinberum vinnumarkaði eða hvernig sem niðurstaðan verður. Málið er alla vega að reiknireglurnar, þessar tvær reiknireglur sem eru báðar að skoða launaþróun, virki ekki þannig að reiknireglan fyrir þingmenn skili alltaf hærri tölu, hærri prósentu en reiknireglan fyrir almannatryggingar. Frekar ætti það að snúa hinsegin ef eitthvað er en að jafnaði ætti þetta u.þ.b. að skila sömu tölu. Það er einhver krónutala og krónutala þarna á milli en það er ákveðið gangverk, efnahagslegt gangverk í rauninni sem þarf alltaf að fínstilla af og til. Grunnurinn er sá að þetta skili alla vega sömu tölunni en ekki að það sé gegnumgangandi að hærri prósentutölu sé skilað fyrir þá sem eru hærra launaðir. Það virkar alls ekki. Þá fyrst erum við að brjóta samfélagssáttmálann.