breyting á ýmsum lögum vegna launa þjóðkjörinna fulltrúa og embættismanna.
Forseti. Ég get hjartanlega tekið undir þetta með hv. þingmanni. Ef við erum að leita að sanngirni og sátt og þess háttar þá þarf að leita víðar. 2016 var ekkert leitað víðar. Það var ekki leitað til verkalýðsfélaganna eða Samtaka atvinnulífsins eða annarra sem höfðu kannski eitthvað að segja um viðmiðin. Það var ekki leitað til þeirra sem eru yfirmenn okkar, fólksins sem við erum að vinna fyrir hvað lögin okkar varðar. Kannski væri ráðlegt að spyrja bara almenning hvaða laun æðstu ráðamenn ættu að hafa. Í þeim óformlegu könnunum sem ég hef gert í gegnum árin þá eru þau laun ekkert fjarri þeim launum sem við erum með núna og í rauninni pössuðu mjög vel við einmitt þær viðmiðunarupphæðir sem hefðu getað verið árið 2016 og þróunina síðan þá ef það hefði verið miðað við aðra dagsetningu. Ég er alveg innilega sammála því að við eigum ekki að fara í eitthvert yfirboð eða undirboð eða kapphlaup eða eitthvað því um líkt og eina leiðin, held ég, til að forðast það er að spyrja einhverja aðra en okkur sjálf.