154. löggjafarþing — 126. fundur,  20. júní 2024.

skyldutryggingar lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

880. mál
[16:06]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Það er eins gott að maður fylgist með og fari í ræðu á réttum stað, um atkvæðagreiðslu en ekki einhvers staðar annars staðar. Ég fagna því að þetta mál sé hér komið til atkvæðagreiðslu. Það var mikil samstaða um þetta mál í nefndinni og sá óvenjulegi atburður gerðist að ASÍ og Samtök atvinnulífsins skiluðu inn sameiginlegri umsögn um málið sem segir okkur eitthvað um það að það ríkir almenn sátt um þetta mál. Ég tel að með því að hér sé verið að heimila lífeyrissjóðum að koma í auknum mæli inn í rekstur leigufélaga og standa að þeim þá verði þetta til þess að auka framboð á húsnæði og það er eitthvað (Forseti hringir.) sem við sem samfélag þurfum svo sannarlega á að halda.