Mannréttindastofnun Íslands.
Forseti. Hér er verið að stíga mjög mikilvægt skref á sviði mannréttinda. Við í Samfylkingunni höfum lengi kallað eftir því að Mannréttindastofnun Íslands verði sett á fót, sjálfstæð, innlend, óháð stofnun, svo að við getum farið í þá vegferð eins og hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra fór hér yfir að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna. Mig langar þó að vekja athygli á umsögnum sem komu frá hinum ýmsu aðilum og mannréttindasamtökum sem sneru að bolmagni þessarar stofnunar til að sinna raunverulega þessu hlutverki. Það er auðvitað eins og margt annað sem við ræðum hér inni háð fjármögnun, háð því að fólk hafi svigrúm til þess að raunverulega sinna þessu eftirliti og umgjörð þessara mála sómasamlega. Ég vek bara athygli þingsins á því og bið þingið að vera vakandi fyrir því á komandi árum, stöðu þessarar stofnunar.